Sk-varnir

Um okkur

Sk-varnir

SK Varnir bjóða leiðandi lausnir á sviði eldvarna og draga þannig úr áhættu hjá viðskiptavinum okkar sem tengjast mögulegum eldsvoðum og afleiðingum þeirra.

 

SK Varnir leggja áherslu á þekkingu og þjálfun starfsmanna og samstarf við leiðandi birgja, sérfræðinga og yfirvöld á okkar sviði.

Við leggjum áherslu á viðskiptavini sem hafa þörf fyrir faglega þjónustu þar sem hægt er að draga úr áhættu sem tengist eldi og afleiðingum hans.

Við vinnum náið með yfirvöldum á sviði mannvirkja og slökkvistarfs, verkfræðingum, arkitektum og öðrum fagaðilum sem hafa áhrif á þennan málaflokk og geta nýtt þá reynslu og tengsl sem við höfum í okkar röðum.

Fyrirtækið hefur í sínum röðum reyndustu eldvarnarmenn landsins sem hafa getið sér gott orðspor hér heima og erlendis.

Við höfum aðgang að áratuga reynslu erlendra birgja og samstarfsaðila sem nýtist vel þegar þörf er fyrir lausnir sem liggja utan okkar reynsluramma.

Brunaþéttingar og brunavarnir borga sig…

 

Starfsmenn

 

Við höfum á að skipa reyndum mönnum úr eldvörnum og öðrum krefjandi verkefnum. Lykilmenn okkar eru:

Jón Ástvaldsson Húsasmiður

Yfirverkefnisstjóri og þjálfari
sími 841 2110 – jon(at)skvarnir.is

Jón er ábyrgðarmaður fyrir starfsemi fyrirtækisins og ber hann ábyrgð á þjálfun starfsfólks, gæðum, skipulagi og verkefnastjórn. Hann hefur unnið að brunavörnum síðustu fjóra áratugina, hefur lokið sveinsprófi í húsasmíði ásamt námskeiða á sviði brunavarna. Hann hefur átt farsælt samstarf við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (Mannvirkjastofnun), Brunamálastofnun, eldvarnaeftirliti og slökkvilið í tengslum við verkefni sín í gegnum tíðina. Verkefnin hafa verið fjölmörg í gegnum tíðina bæði fyrir ríki, sveitarfélög og einkaaðila.

Jón Ástvaldsson hefur unnið að bruna- og hljóðvörnum fyrir flesta stærri byggingarverktaka og verkfræðistofur landsins, hann hefur einnig unnið sem húsasmiður í Noregi og sem verkefnastjóri og smiður að fjölda verkefna á Ísland. Hann hefur unnið brunavörnum í stórum verkefnum m.a við byggingu stærsta skólahúsnæðis Færeyja, vegna uppbyggingar stærstu álverksmiðja landsins s.s. Norðurál og Alcoa Fjarðaál, íþróttamannvirkjum, kirkjum, veitingahúsum og öðrum stórum mannvirkjum.

 

Ívar Jósafatsson

Ráðgjafi
sími 824 2266 – ivar(at)skvarnir.is

Brunaþéttingar og Brunavarnir eru okkur lífsins mál