Brunavarnir á PVC einangruðum köplum fyrir sterkstraum, veikstraum eða gagnaflutning.
Með brunavörn kapla dregur verulega úr þeim eldmat sem getur logað, dreifileið fyrir eldinn er rofin og komið er í veg fyrir saltsýru gasmyndun við bruna.
Hægt er að eldverja nýja og eldri kapla en aðeins þarf að tryggja viðloðun með
þrifum.
Kapalvarnir geta aukið öryggi starfsfólks og slökkviliðsmanna auk þess að draga verulega úr líkum á alvarlegu eignatjóni, sem jafnvel lítill bruni getur valdið.
Virkni brunavarðra lagna í eldi er tryggð út varnartíma (30, 60, 90 eða 120 mín) og burðargeta kapla rýrnar ekki við eldvörnina.
Brunavarnir kapla geta haft mikil áhrif á áhættu og þar með stöðu gagnvart tryggingum.



Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú ert með spurningar sem snúa að eldvörnum kapla. Við höfum áratuga reynslu af slíkum verkum og gerum tilboð að kostnaðarlausu.
Hafdu samband