
Verkið snérist um að eldverja burðarvirki í nýjum skóla í Færeyjum, Glasir menntaskólanum í Þórshöfn. Skólinn er virkilega metnaðarfull framkvæmd, nærri 20.000 fermetrar á sex hæðum. Þar er pláss fyrir allt að 1200 nemendur og starfsmenn. Hönnuður byggingarinnar er Bjarke Ingels hjá BIG arkitektastofunni sem er ein frægasta arkitektastofa heims.
Verkið gekk mjög vel og eins og sést á umsögn frá verkkaupa er hann mjög ánægður með hvernig til tókst:

Hér má svo sjá myndband sem tekið var á byggingartíma og þar sést stálvirkið vel sem var verið að eldverja.
Myndband birt með góðfúslegu leyfi Nohrcon, http://www.nohrcon.dk
Hér má svo sjá hvernig skólinn lítur út fullkláraður – glæsilegt mannvirki sem Færeyingar geta verið stoltir af. Myndir fengnar af heimasíðu skólans, http://www.glasir.fo, og birtar með leyfi skólans.





